Fylkir vonast til þess að Helgi Valur Daníelsson haldi áfram að leika með liðinu, hann ræðir við félagið um nýjan samning.
Atli Sveinn Þórarinsson og Ólafur Stígsson tóku við liðinu í dag ásamt því að Ólafur Ingi Skúlason verður aðstoðarþjálfari.
Helgi Valur var jafn besti leikmaður Fylkis í ár, hann er 38 ára gamall en mun að öllum líkindum halda áfram.
,,Við viljum halda honum, það er 100 prósent. Hann er í viðræðum við félagið, ég hugsa að það eigi eftir að ganga upp,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, sem verður spilandi aðstoðarþjálfari.
Ólafur líkir Helga við Benjamin Button sem lék í frægri bíómynd, hann yngdist með árunum.
,,Hann er eins og Benjamin Button, hann yngist með hveru árinu. Það er gott fyrir félagið að hafa svona mann.“