Kevin De Bruyne leikmaður Manchester City verður frá í einhvern tíma vegna meiðsla í nára.
De Bruyne meiddist í sigri Manchester City á Everton um liðna helgi.
De Bruyne verður fjarverandi gegn Dinamo Zagreb í kvöld þegar liðin mætast í Meistaradeildinni.
City segir að ekki sé vitað hvenær De Bruyne komi til baka, líkur eru á að hann missi af næsta deildarleik.
City glímir við mikil meiðsli en Leroy Sane, Aymeric Laporte og John Stones eru allir frá.