Burnley vill fá 9 milljónir punda fyrir Sam Vokes framherja félagsins í dag en Stoke reynir að kaupa hann á lokadegi félagaskiptagluggans.
Burnley er þó til í að skoða að lækka verðmiðann ef Peter Crouch kemur í skiptum.
Burnley vill fá talsvert af fjármunum til að fjármagna kaup á Che Adams framherja Birmingham sem er eftirsóttur.
Burnley er að berjast við Southampton og Fulham um Adams sem hefur verið öflugur hjá Birmingham.
Burnley gæti leyft honum að klára tímabilið hjá Birmingham ef félaginu tekst að kaupa hann í dag.