Waldemar Kita, forseti Nantes í Frakklandi er í sárum. Emiliano Sala sem gekk í raðir Cardiff frá Nantes um helgina er týndur
AFP fréttastofan hefur fengið það staðfest frá lögreglunni í Frakklandi að Emiliano Sala, framherji Cardiff hafi verið um borð í flugvélinni sem hvarf í gær. Cardiff hefur ekki staðfest fréttirnar.
Vélin var á leið fá Nantes í Frakklandi til Cardiff. Cardiff var að kaupa Sala frá Nantes en hann var í Frakklandi að kveðja gamla vini.
Meira:
Kolbeinn og liðsfélagar í sárum í Frakklandi: Víðamikil leit af Sala og flugvélinni
Staðfesta að liðsfélagi Arons Einars hafi verið um borð í vélinni sem hvarf í gær
Óhugnanlegt atvik: Dýrasti leikmaðurinn í liði Arons Einars sagður vera í flugvél sem er týnd
Vélin týndist við Casquets á leið sinni en það var um klukkan 20:30 í gærkvöldi, flugumferðarstjórar tóku þá eftir því að vélin hvarf skyndilega af radar sem þeir fylgjast með.
Cardiff borgaði 14 milljónir punda fyrir Sala um helgina, hann er markaskorari sem getur hjálpað liðinu mikið.
,,Hann kom hingað aftur til að kveðja vini sína, hann var auðmjúkur og frábær drengur. Það elskuðu hann allir hérna, hann bar virðingu fyrir öllu. Ég hugsa til fjölskyldu hans og vina,“ sagði Kita.
,,Við vitum ekki meira, ég er að vona að þetta sé ekki búið. Að hann sé einhverstaðar, að hann finnist á lífi. Ég var bara að fá þessar fréttir, ég vissi ekki að hann hefði komið hingað í gær. Ég vona að hann finnist heill á húfi.“