Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United verður áfram án lykilmanna gegn West Ham um helgina.
Paul Pogba, Anthony Martial og Luke Shaw eru allir áfram frá.
Þeir félagar hafa misst af síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla og komast ekki til Lundúna.
Um er að ræða þrjá leikmenn sem eru allir fastamenn í byrjunarliði United.