Það eru vond tíðindi sem berast frá Manchester City nánast vikulega í upphafi móts.
Leroy Sane meiddist alvarlega í upphafi tímabils og Aymeric Laporte, besti miðvörður liðsins verður frá í hálft ár.
Nú var John Stones að meiðast og því á City bara einn miðvörð sem er heill heilsu. Vincent Kompany fór í sumar en ekkert var keypt.
Það er því aðeins Nicolas Otamendi sem verður leikfær næstu vikurnar, þunnskipað hjá Pep Guardiola.
City er fimm stigum á eftir toppliði Liverpool eftir fimm leiki og erfið staða uppi, með alla þessa menn í meiðslum
More bad news for Pep. Says Stones was injured in training this morning. Out for 4/5 weeks. City now down to one fit centre-back (Otamendi)
— Paul Hirst (@hirstclass) September 17, 2019