Jurgen Klopp, stjóri Liverpool efast um að Liverpool vinni Meistaradeildina aftur í ár. Liverpool hefur farið í úrslit, tvö ár í röð.
Klopp og félagar unnu góðan sigur á Tottenham í úrslitum í fyrra en dregið verður í riðla í dag.
,,Það væri ekki leiðinlegt að komast í úrslit aftur, ég er hins vegar ekki svo viss um að það gerist,“ sagði Klopp.
Liverpool er samt sem áður eitt allra besta lið Evrópu og til alls líklegt.
,,Við eigum sömu möguleika og aðrir, það er ekki meira en það. Ensk lið munu ekkert bera af, það eru mörg mjög góð lið.“