Luke Shaw, bakvörður Manchester United verður líklega frá í mánuð. Ef marka frétt ESPN.
Shaw fór meiddur af velli í tapi gegn Crystal Palace um helgina, hann virtist togna aftan í læri.
Bakvörðurinn mun missa af leik gegn Southampton um komandi helgi, segir ESPN.
ESPN segir að Shaw verðí líklega frá í fjórar vikur, Ashley Young mun líklega fylla hans skarð.
Shaw á að vera lykilmaður í vörn Manchester United og höggið er því talsvert.