Tekjublað DV kom út í dag en þar má finna margt áhugavert um laun fólks fyrir árið 2018. Þar á meðal eru laun formanns og framkvæmdarstjóra KSÍ.
Guðni Bergsson formaður KSÍ, þénaði rúmar 1,3 milljónir á mánuði á síðasta ári. Guðni þénaði rúmum 100 þúsund krónum meira en Klarta Bjartmarz, framkvæmdarstjóri sambandsins.
Guðni þénaði líka talsvert mikið meira en Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ. Geir var með rúmar 500 þúsund krónur, sömu sögu er að segja af Þóri Hákonarssyni fyrrum framkvæmdarstjóra KSÍ.
Guðni er á sínu þriðja ári í starfi en hann tók við af Geir sem hafði lengi starfað fyrir KSÍ. Geir reyndi að fá starfið aftur í upphafi þessa árs en það tókst ekki. Guðni vann þar stórsigur í kosningum, á ársþingi KSÍ.
Þetta eru tekjur þjálfara á Íslandi: Freyr þénaði meira en Heimir
Topparnir í KSÍ:
Guðni Bergsson form. KSÍ 1.327.860 Kr.
Klara Bjartmarz framkvstj. KSÍ 1.207.083 Kr.
Þórir Hákonarson íþróttastj. Þróttar og fyrrv. framkvstj. KSÍ 521.513 Kr.
Geir Þorsteinsson fyrrv. form. KSÍ 514.509 K
Laun þeirra og tvö þúsund annarra Íslendinga má sjá í tekjublaði DV sem kom út í dag.