Eigandi Newcastle, Mike Ashley, elskar að spara peninga og er ekki mikið í því að kaupa leikmenn til félagsins.
Ashley reynir nú að fá nýjan stjóra til að taka við á St. James’ Park en Rafa Benitez er farinn til Kína.
Enskir miðlar eru sammála um það að Steve Bruce sé að taka við en hann er í dag stjóri Sheffield Wednsesday.
Ef Bruce skrifar undir þá verður hann launalægsti stjóri úrvalsdeildarinnar með 20 þúsund pund á viku.
Bruce mun fá um eina milljón punda í árslaun sem er sex sinnum minna en Benitez fékk hjá félaginu.
Ashley reynir þessa dagana að selja félagið og hefur engan áhuga á að fá rándýran stjóra við stjórnvölin.