Samuel Eto’o, fyrrum framherji Barcelona og Real Madrid, ráðleggur Mo Salah að fara frekar til Barcelona.
Þessi öflugi leikmaður Liverpool er ekki á förum en ekki er ólíklegt að bæði stórliðin á Spáni, reyni að fá hann.
Salah hefur átt tvö frábær ár með Liverpool og þá fara risarnir á Spáni að horfa. ,,Real Madrid gaf mér tækifæri að fara frá Afríku, ég þekki leikstíl Barcelona og það væri betra fyrir Salah,“ sagði Eto’o.
,,Ef hann hefur tækifæri á að fara í bestu deildina, sem er á Spáni. Þá verður hann að fara í Barcelona.“
,,Salah hefur allt til að vera besti leikmaður í heimi.“