Gylfi Þór Sigurðsson, skærasta stjarna Íslands í fótbolta og Alexandra Helga Ívarsdóttir, gengu í það heilaga í dag. Margir hafa fylgst með gangi mála á Instagram.
Gestir hafa verið duglegir að deila myndum með myllumerkinu #LexaSig. Margir af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu eru á svæðinu.
Athygli vakti að Ledley King, fyrrum varnarmaður Tottenham er á svæðinu. Þá er Simon Curch, fyrrum framherji Reading einnig á svæðinu.
Sjáðu meira:
Sjáðu myndirnar: Fyrirpartý fyrir brúðkaup Gylfa og Alexöndru – Rúrik og frú vekja mikla athygli
Veislan fór fram við Comovatnið á Ítalíu í dag, mikil gleði hefur verið í loftinu, en vinir og vandamenn fagna deginum með þessu ofurpari.
Lítið hefur sést til þessara nýju hjóna á samfélagsmiðlum í veislunni. Þá birtust ekki neinar myndir úr athöfninni sjálfri á samfélagsmiðlum.
Eftir athöfnina hefur verið mikil veisla, gestir leika við hvern sinn fingur. Flugeldum var skotið upp og hér að neðan má sjá hvaða listamenn hafa komið fram.
Þessir listamenn hafa sést koma fram:
Bríet
Sóli Hólm
Friðrik Dór Jónsson
Jón Ragnar Jónsson
Kaleo
Aron Can
Herra Hnetusmjör