HK, KA og fleiri lið hafa spurst fyrir um Kwame Quee leikmann Breiðabliks, þetta herma öruggar heimildir 433.is.
Blikar fengu Kwame frá Víkingi Ólafsvík í sumar en hann var ekki í leikmannahópi liðsins, geng HK um liðna helgi, í Pepsi Max-deild karla.
Kwame er kant og miðjumaður en BLikar ætlar ekki að láta hann fara, þeir telja að hann muni nýtast liðinu.
Kwame, sem er 22 ára gamall landsliðsmaður frá Sierra Leone, vakti töluverða athygli síðasta sumar með frammistöðu sinni með Ólafsvíkingum í Inkasso deildinni. Hann skoraði 11 mörk í 21 leik og var valinn í úrvalslið deildarinnar.
,,Hann fer ekki á lán eða fer yfir höfuð, eins og staðan er í dag,“ sagði Sigurður Hlíðar Rúnarsson, starfsmaður knattspyrnudeildar Breiðabliks við 433.is Hann vildi ekki staðfesta hvaða lið hefðu viljað fá Kwame.
Blikar eru á leið í Evópukeppni og komust áfram í bikarnum, það er því talsvert af verkefnum. ,,Stærsta ástæðan fyrir því að við getum illa lánað leikmenn, er að ef þeir fara á láni þá eru þeir ólöglegir í Evrópuleikjunum okkar.“