Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Liverpool, hefur verið valinn í Meistaradeildarhóp liðsins.
Oxlade-Chamberlain hefur misst af öllu tímabilinu hingað til en hann meiddist á hné á síðustu leiktíð.
Hann hefur undanfarna mánuði verið á batavegi og líklega byrja að æfa venjulega í þessum mánuði eða þeim næsta.
Útlit er fyrir að miðjumaðurinn muni taka þátt í verkefni Liverpool ef liðið kemst lengra í Meistaradeildinni.
Liverpool spilar við Bayern Munchen í 16-liða úrslitum en hann mun ekki taka þátt í þeim leikjum.