Það hefur snjóað mikið á Englandi frá því í nótt en snjórinn er meira en fólk þarf yfirleitt að venjast.
Það fer fram leikur á Anfield í kvöld þegar Leicester heimsækir Liverpool. Það hefur mikið snjóað í borginni.
Margir töldu að þetta myndi hafa áhrif á leik kvöldsins, ekki er talið að svo verði.
Það er hins vegar ljóst að það mun taka meiri tíma fyrir félögin og stuðningsmenn að komast á völlinn.
Liverpool getur stigið stórt skref í að tryggja sér sigur í deildinni í kvöld eftir tap Manchester City í gær. Liverpool getur náð sjö stiga forskoti á toppi deildarinnar.
Myndir af Anfield eru hér að neðan.