Enskir miðlar fjalla um að Virgil van Dijk varnarmaður Liverpool sé tæpur fyrir leikinn gegn Leicester á morgun.
Van Dijk er að glíma við veikindi sem hann fékk í æfingaferð félagsins í Dubai.
Van Dijk er 27 ára gamall en hann kom til Liverpool fyrir ári síðan, hann hefur verið frábær fyrir liðið.
Van Dijk er ein stærsta ástæða þess að Liverpool situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fjögura stiga forskot.
Leicester gæti reynt að nýta sér það ef Van Dijk verður ekki með á Anfield á morgun en Dejan Lovren og Joel Matip munu þá líklega vera í hjarta varnarinnar.