Liverpol íhugar að reyna að fá Callum Hudson-Odoi kantmann Chelsea en hann er eftirsóttur biti þessa dagana.
Chelsea hefur reynt að gera nýjan samning við Hudson-Odoi en hann hefur hafnað honum. Hudson-Odoi vill fara til FC Bayern.
Chelsea hefur hafnað þremur tilboðum frá Bayern í Hudson-Odoi sem er 18 ára gamall.
Chelsea er tilbúið að borga honum 85 þúsund pund á viku en Hudson-Odoi vill fara.
Bild í Þýskalandi segir að Liverpool sé komið í baráttuna um Hudson-Odoi sem er eitt mesta efni Englands. Ljóst er að það yrði erfitt fyrir hann að fá að spila hjá Liverpool með Mohamed Salah og Sadio Mane á köntunum.