Það loga eldar í Manchester United en þar er stríð á milli Jose Mourinho og Paul Pogba.
Þeir félagar eiga í deildum en gengi United hefur ekki verið gott í upphafi tímabils.
Sumir fjölmiðlar telja að Mourinho gæti misst starfið ef þetta heldur áfram.
Það myndi kosta United haug af peningum að losa sig við Mourinho en hann gerði nýjan samning í janúar.
Samningurinn til 2020 og United þarf að greiða Mourinho öll hans laun út þann tíma, ef hann verður rekinn.
Mourinho þénar 13,5 milljónir punda á tímabili og það myndi því kosta United vel yfir 20 milljónir punda að reka hann.