Paul Pogba fékk þau skilaboð í gær um að hann myndi aldrei bera fyrirliðabandið hjá Manchester United á nýjan leik.
Þessi franski miðjumaður hefur borið bandið þrisvar á þessu tímabili en Mourinho telur hegðun hans ekki lengur ásættanlega. Leikmannahópur United fékk að vita þetta í gær fyrir tap gegn Derby í deildarbikarnum. Pogba var ekki í leikmannahópi United, hann horfði úr stúkunni.
Meira:
Ítarleg greining á sambandi Mourinho og Pogba – Pogba hegðar sér eins og kóngur
Mino Raiola, umboðsmaður Pogba var spurður um framtíð Pogba í dag en hann hefur farið mikinn í að reyna að koma honum burt frá United.
,,Ég get ekkert sagt,“ sagði Raiola þegar hann var spurður um hvort Pogba hefði látið Jose Mourinho vota að hann vildi fara til Barcelona.
,,Ég get ekkert sagt,“ var svoa aftur svar Raiola þegar hann var spurður um hvort hann gæti neitað þessu.
Is it true Paul Pogba has told Mourinho he wants to leave #mufc and join Barcelona. Raiola: „I have no comments“. Can you deny that Pogba has told Mourinho he wants out and to go to Barca? „I have no comments“.
— James Ducker (@TelegraphDucker) September 26, 2018