Patrice Evra fyrrum leikmaður Manchester United hefur greint frá því þegar hann ákvað að kúka í skóinn hjá liðsfélaga sínum hjá félaginu.
Evra hafði mætt í nýum skóm á æfingu sem liðsfélagar hans ákváðu að kveikja í.
Evra komst að því að Gerard Pique sem þá var hjá United hafði átt upphafið að því.
,,Þeir kveiktu í skónum mínum, það var ekki fyndið,“ sagði Evra á Sky um helgina.
Evra var ekki lengi að hefna sín og tók skóna hans Pique og skellti sér á klósettið.
,,Þetta var Pique sem gerði þetta, ég tók skóna hans og fór á klósettið. Ég skeit í þá.“