Það fer fram skemmtileg viðureign í ensku úrvalsdeildinni á morgun er Chelsea heimsækir West Ham í Lundúnarslag.
Chelsea er með fullt hús stiga í deildinni eftir fimm umferðir en West Ham byrjaði erfiðlega. Liðið vann þó Everton í síðustu umferð á Goodison Park.
Óvíst er með þáttöku Mateo Kovacic og Pedro hjá Chelsea en þeir eru tæpir fyrir leikinn á morgun.
Einnig er þá óvíst hvort framherjinn Marko Arnautovic geti spilað með West Ham en hann er að glíma við smávægileg meiðsli.
Upplýsingar um leikinn:
Sunnudagur – 12:30
Leikstaður – London Stadium
Á síðustu leiktíð – West Ham 1-0 Chelsea
Dómari – Mike Dean
Stuðlar á Lengjunni:
West Ham – 4,29
Jafntefli – 3,61
Chelsea – 1,47
Meiðsli:
West Ham – Arnautovic (tæpur), Caroll, Wilshere, Reid
Chelsea – Kovacic (tæpur), Loftus-Cheek (tæpur), Palmieri (tæpur), Pedro (tæpur)
Hér má sjá líkleg byrjunarlið á morgun.