Það fer fram hörkuleikur í sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun er Crystal Palace og Newcastle eigast við.
Newcastle hefur farið erfiðlega af stað í sumar og er eitt af fjórum liðum sem hefur ekki unnið leik eftir fimm umferðir.
Palace er með sex stig í 12. sæti deildarinnar en liðið hefur unnið tvo leiki og tapað þremur.
Leikurinn fer fram á Selhurst Park, leikvangi Palace og eru heimamenn taldir sigurstanglegri.
Upplýsingar um leikinn:
Laugardagur – 14:00
Leikstaður – Selhurst Park
Á síðustu leiktíð – Crystal Palace 1-1 Newcastle
Dómari: Andre Marriner
Stuðlar á Lengjunni:
Crystal Palace – 1,93
Jafntefli – 2,85
Newcastle – 3,11
Meiðsli:
Crystal Palace – Tomkins(tæpur), Benteke, Dann, Wickham
Newcastle – Lejuene(tæpur)
Hér má sjá líkleg byrjunarlið.