Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hrósaði nokkrum leikmönnum í dag eftir 2-0 sigur liðsins á Burnley.
Mourinho var undir pressu fyrir leikinn í dag en talað var um að hann þyrfti að ná í úrslit til að forðast sparkið.
Portúgalinn var afar ánægður eftir sigurinn og hrósaði sérstaklega þeim Marouane Fellaini, Victor Lindelof og Chris Smalling.
,,Það voru margir sem stóðu sig vel en ég myndi segja það að Fellaini hafi verið einn sá mikilvægasti fyrir liðið, ásamt Smalling og Lindelof, þeir mynduðu frábæran hóp. Luke Shawá átti einnig mjög góðan leik,” sagði Mourinho.
,,Ég er hæstánægður og ég held að einhverjir af ykkur hljóti að vera vonsviknir. Þetta var góð frammistaða frá fyrstu snertingu.”
,,Ég hef mikið pláss á hliðarlínunni til þess að taka viðbrögðum stuðningsmanna. Þjálfarinn er ekki mikilvægur, leikmennirnir eru það.”
Einnig var Mourinho spurður út í hvort hann hafi séð borða fljúga yfir leikvanginn en talað var um að stuðningsmenn myndu óska eftir því að hann yrði rekinn á þann hátt.
,,Ég horfi ekki upp til himins nema að ég sé að biðja Guð um hjálp. Ég sá hann ekki en Ed Woodward vann í dag.“