Pep Guardiola stjóri Manchester City segist ekki vita hvernig viðræður við Raheem Sterling um nýjan samning ganga.
Sterling heimtar mikla launahækkun en hann er með 175 þúsund pund á viku í dag.
Sóknarmaðurinn knái vi 275 þúsund pund á viku ef marka má fréttir dagsins.
,,Við erum mjög ánægðir með hann, við viljum að hann haldi áfram,“ sagði Guardiola.
,,Félagið veit mína skoðun, við ræðum málið en núna er það undir félaginu og umboðsmanninum. Ég er ekki með því.“
,,Stundum þarf svona tíma, Raheem er mikilvægur okkur og fólkið hans veit af því. Kannski gerir hann nýjan samning, kannski ekki.“