Samkvæmt fjölmiðlum ytra er orðið ólíklegt að Liverpool geti fengið Adrien Rabiot miðjumann PSG.
Rabiot verður samningslaus næsta sumar og getur því samið við annað félag í janúar.
Liverpool hefur verið orðað við Rabiot og vitað er að Jurgen Klopp hefur mikið og gott álit á honum.
Nú er sagt að Barcelona leiði kapphlaupið en Rabiot er afar öflugur franskur miðjumaður. Sagt er að Liverpool sé meðvitað um þetta og skoði aðra kosti.
Þrátt fyrir að spila stórt hluverk hjá PSG telur Rabiot sig geta fengið betri laun á öðrum stað.