Við erum að fá ótrúlegan fyrri hálfleik á Stamford Bridge þar sem Chelsea og Arsenal eigast við í ensku úrvalsdeildinni.
Chelsea byrjaði leikinn frábærlega og komst í 2-0 með mörkum frá Pedro og Alvaro Morata.
Arsenal svaraði hins vegar með tveimur mörkum en Henrikh Mkhitaryan byrjaði á því að minnka muninn með góðu skoti utan teigs.
Alex Iwobi jafnaði svo metin fyrir Arsenal ekki löngu síðar en hann þrumaði boltanum í netið eftir sendingu Mkhitaryan.
Hér má sjá mörk Arsenal.
After Mkhitaryan missed a complete sitter, Mkhitaryan scores a beautiful goal #CHEARS #Arsenal pic.twitter.com/7XUgJfdKyq
— Football News (@FIFAWCGoals) 18 August 2018
Goal Iwobi Chelsea vs Arsenal 2-2 #CHEARS pic.twitter.com/VFtqUVi9pI
— 100% HIGHLIGHTS (@100HIGHLIGHTS) 18 August 2018