Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, segir að liðið sé ekki líklegt til þess að berjast um titilinn á Englandi þessa stundina.
Chelsea vann 3-2 sigur á Arsenal á Stamford Bridge í dag en Sarri var óánægður með varnarleik liðsins í leiknum.
,,Við erum ekki líklegir til að berjast um titilinn, ekki eins og staðan er,“ sagði Sarri við blaðamenn.
,,Við verðum að bæta okkur varnarlega og þá er ég ekki bara að tala um varnarmennina.“
,,Við gerðum vel í 75 mínútur, 15 mínúturnar undir lok fyrri hálfleiksins voru hörmulegar.“