Everton á Englandi hefur fest kaup á bakverðinum Lucas Digne en þetta var staðfest af félaginu í dag.
Digne er 25 ára gamall Frakki en hann kemur á Goodison Park eftir dvöl hjá Barcelona á Spáni.
Digne skrifar undir hjá Everton til ársins 2023 en hann er talinn kosta félagið um 20 milljónir punda.
Digne býr yfir nokkuð mikilli reynslu en hann hefur leikið með Paris Saint-Germain, Roma og Barcelona á ferlinum.
Hann er þá franskur landsliðsmaður og á að baki 21 leik en var ekki valinn á HM í Rússlandi í sumar.