Newcastle United á Englandi hefur fest kaup á varnarmanninum Fabian Schar.
Þetta staðfesti félagið í dag en Schar kemur frá spænska liðinu Deportivo La Coruna á þrjár milljónir punda.
Schar spilaði í eitt tímabil á Spáni eftir tveggja ára stopp hjá þýska liðinu Hoffenheim.
Schar er 26 ára gamall hafsent en hann er hvað þekktastur fyrir tíma sinn hjá Basel í heimalandinu.
Schar gerir þriggja ára samning við Newcastle en hann er svissnenskur landsliðsmaður og á að baki 42 landsleiki.