Það verður líklega ekkert úr því að Marko Arnautovic gangi í raðir Manchester United eins og greint var frá fyrr í sumar.
Margir miðlar sögðu að Arnautovic væri ofarlega á óskalista Jose Mourinho fyrir næstu leiktíð.
Samkvæmt fregnum dagsins er þó ólíklegt að United kræki í leikmanninn en West Ham vill alls ekki selja hann.
West Ham vill nú fá 60 milljónir punda fyrir sóknarmanninn, upphæð sem er talin alltof há fyrir 29 ára gamlan leikmann.
Arnautovic gekk aðeins í raðir West Ham á síðasta ári en hann hafði fyrir það spilað með Stoke.