Huddersfield á Englandi hefur áhuga á framherjanum Andre Silva sem spilar með AC Milan á Ítalíu.
Þetta staðfestir Sky Sports í kvöld en Silva gekk aðeins í raðir Milan frá Porto síðasta sumar.
Silva er 22 ára gamall framherji en hann skoraði ekki mikið á sínu fyrsta tímabili á Ítalíu.
Silva var keyptur fyrir háa upphæð til Milan og var búist af miklu af framherjanum sem skoraði þó aðeins tvö deildarmörk.
Huddersfield gæti nú gefið leikmanninum lífslínu en hann á að baki 22 landsleiki fyrir Portúgal og hefur gert 12 mörk.