Wolves í ensku úrvalsdeildinni hefur tryggt sér markvörðinn Rui Patricio á frjálsri sölu.
Patricio hefur allan sinn feril leikið með Sporting í Portúgal en fékk að rifta samningi sínum við félagið fyrr á árinu.
Margir vilja komast burt frá Sporting en mikil vandræði eru hjá félaginu og var ráðist á leikmenn á síðustu leiktíð.
Patricio er aðalmarkvörður Portúgals en hann er 30 ára gamall og á að baki 70 landsleiki.
Patricio spilar með Portúgal á HM í Rússlandi en mun svo halda til Englands og hitta nýju liðsfélagana.