U16 ára lið karla vann 3-0 sigur á Litháen í dag í öðrum leik liðsins á UEFA Development Tournament, en leikið er í Gargzdai í Litháen.
Róbert Orri Þorkelsson, Valgeir Valgeirsson og Bjartur Barmi Barkarson skoruðu mörk Íslands.
Liðið leikur þriðja, og síðasta, leik sinn á mótinu á laugardaginn þegar það mætir Búlgaríu.
Mörkin úr leiknum eru hér að neðan.
Mörk U16 ára landsliðs karla gegn Litháen, en leikurinn fór fram í morgun, fimmtudag, og endaði með 3-0 sigri Íslands.
Mörkin skoruðu Róbert Orri Þorkelsson, Valgeir Valgeirsson og Bjartur Bjarmi Barkarson.
Our goals from the U16 game against Lithuania today. pic.twitter.com/4bcI4Qmg0k
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) April 5, 2018