Michail Antonio, sóknarmaður West Ham mun missa af restinni af tímailinu en það er Sky Sports sem greinir frá þessu í dag.
Hann var í byrjunarliði West Ham gegn Southampton um helgina en þurfti að yfirgefa völlinn eftir um 9. mínútna leik.
Hann er meiddur aftan í læri og reiknar félagið nú með því að hann verði frá út tímabilið.
Hann hefur skorað þrjú mörk í deildinni á þessari leiktíð en West Ham er í fjórtánda sæti deildarinnar með 33 stig, fimm stigum frá fallsæti.