Það þarf að eiga sér eitt ótrúlegata slys í sögu fótboltans ef Barcelona á ekki að vinna La Liga.
Liðið hefur fjórtán stiga forskot á Atletico Madrid og sex umferðir eru eftir.
Barcelona vann góðan 2-1 sigur á Valencia á heimavelli í dag.
Luis Suarez kom Börsungum yfir áður en Samuel Umtiti bætti við marki fyrir heimamenn.
Gestirnir löguðu stöðuna með marki úr vítaspyrnu en nær komust þeir ekki.