Pierre-Emerick Aubameyang var hetja Arsenal er Stoke heimsótti liðið í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Leikurinn var jafn og Arsenal var ekki að spila vel og þá sérstaklega í fyrri hálfleik.
Það var á 75 mínútu sem Bruno Martins Indi braut á Mesut Özil innan teigs.
Pierre-Emerick Aubameyang steig á punktinn og skoraði af nokkru öryggi.
Hann skoraði svo aftur tíu mínútum og sigurinn í höfn. Nokkrum mínútum síðar fékk Arsenal aðra vítapsyrnu og Aubameyang leyfði hann Alexandre Lacazette að taka hana, hann skoraði af öryggi.
Athygli vakti að Aubameyang var með nafn skrifað í hárið sitt.
,,Amma mín lést í síðustu viku og þetta er mín leið til að minnast hennar,“ sagði framherjinn eftir leik.
Mynd af þessu er hér að neðan.