Antonio Conte stjóri Chelsea segist ekki vita hvort hann verði áfram í starfi sínu.
Conte og Chelsea eru ekki í efstu fjórum sætunum þessa stundina.
Ef Chelsea nær ekki Meistaradeildarsæti er nokkuð ljóst að starf Conte er í hættu.
Andað hefur köldu á milli hans og stjórnar Chelsea.
,,Ég veit ekki hvort ég verði áfram ef við missum af Meistaradeildarsæti,“ sagði Conte.
,,Það er ekki mitt vandamál, það er vandamál fyrir félagið, ekki mig.“