Alexis Sanchez, sóknarmaður Manchester United skellti sér á hársnyrtistofu í dag og hressti aðeins upp á sig.
Manchester United tekur á móti Liverpool í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á morgun en mikil eftirvænting ríkir fyrir leiknum.
Bæði lið eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og því ljóst að það er gríðarlega mikið undir á morgun og Old Trafford.
Sanchez kom til félagsins í janúarglugganum frá Arsenal í skiptum fyrir Henrikh Mkhitaryan en hann hefur ekki farið jafn vel af stað og fólk átti von á.
Eins og áður sagði skellti hann sér á rakarasofuna í dag og bauð upp á nýtt útlit en myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.