Mohamed Salah hefur verið valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni.
Salah hefur átt magnað tímabil á Englandi síðan hann kom til Liverpool frá Roma síðasta sumar.
Hann hefur skorað 24 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og lagt upp önnur 8 fyrir liðsfélaga sína.
Í febrúar skoraði hann fimm mörk fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en liðið situr nú í þriðja sæti deildarinnar með 60 stig, tveimur stigum minna en Manchester United.