Manchester United tekur á móti Liverpool í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á morgun klukkan 12:30.
United situr sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 62 stig á meðan Liverpool er í þriðja sætinu með 60 stig og því ljóst að það er mikið undir á morgun.
Andrew Robertson, bakvörður Liverpool er klár í slaginn í leikinn á morgun en hann hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu.
Bakvörðurinn átti ekki fast sæti í liðinu í upphafi leiktíðar en nýtti tækifærið sitt vel þegar Alberto Moreno og hefur verið öflugur síðan.