Simon Mignolet átti þrítugsafmæli í gær en dagurinn var ekkert sérstaklega skemmtilegur fyrir hann.
Mignolet og liðsfélagar hans mættu Porto í Meistaradeildinni og gerðu markalaust jafntefli. Liverpool vann fyrri leikinn 5-0 og komst áfram í átta liða úrslit.
Mignolet var eins og undanfarið á bekknum í kuldanum á Anfield og fékk ekki eitt mark í afmælisgjöf.
,,Takk fyrir þeir 54 þúsund stuðningsmenn Liverpool sem mættu í afmælið mitt,“ skrifaði Mignolet.
,,Ekki ánægður með sætið mitt samt.“