Stuðningsmenn Arsenal eru í sárum vegna þess hversu lélegt liðið þeirra er orðið.
Arsene Wenger stjóri Arsenal gæti verið að stýra liðinu á sinni síðustu leiktíð.
Arsenal hefur verið að missa flugið síðustu ár og nú hefur liðið verið að spila illa.
Enska götublaðið Mirror býst við miklum breytingum hjá Arsenal. Wenger gæti farið og margir leikmenn sömuleiðis
Blaðið telur að Arsenal gæti keypt Bernd Leno, Álvaro Odriozola, Jonny Evans, Abdoulaye Doucoure, og Malcom í sumar.
Svona gæti byrjunarlið Arsenal því orðið á næstu leiktíð.