Jose Mourinho stjóri Manchester United gæti fengið refsingu frá enska knattspyrnusambandinu.
Mourinho sparkaði flösku upp í stúku gegn Crystal Palace í gær.
United vann 2-3 sigur á Palace eftir að hafa verið tveimur mörkum undir.
Mourinho hefur áður fengið refsingu fyrir að sparka í flösku og það gæti nú gerst aftur.
Stjórinn var fljótur að sjá að sér sem gæti komið honum til góða.
Myndband af þessu er hér að neðan.