Jordan Henderson fyrirliði Liverpool var brattur eftir markalaust jafntefli gegn Porto í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Liverpool vann fyrri leikinn ytra 5-0 og er því komið áfram.
,,Þetta er úrslitastund tímabilsins, næstu mánuðir eru mikilvægir fyrir okkur. VIð verðum að spila vel og þá fylgja úrslitin,“ sagði Henderson.
,,Það breytir engu hvaða lið við fáum, það eru bara góð lið eftir á þessu stigi. Við erum klárir í allt.“
,,Við viljum afreka stóra hluti, við gátum ekki brotið Porto niður en viðhorfið var frábært.“