Líklegt er að Manchester United verði án Anthony Martial gegn Crystal Palace í kvöld.
Fréttamenn sáu Martial ekki mæta með United liðinu í lestina til Lundúna í gær.
Martial er búinn að vera öflugur á þessu tímabili en hann gæti hafa meiðstl lítilega.
United þarf sigur á Palace í kvöld til að endurheimta annað sætið og ná níu stiga forskoti á Chelsea sem er í fimmta sæti.
Marcus Rashford gæti fengið að byrja sinn fyrsta leik í lengri tíma ef Martial er meiddur.