Líkur eru á að Mohamed Salah sóknarmaður Liverpool fái hvíld á morgun í Meistaradeildinni.
Liverpool slátraði Porto 5-0 í fyrri leiknum og er því svo gott sem komið áfram.
Salah hefur verið í geggjuðu formi en Liverpool á leik við Manchester United um næstu helgi og gæti hvílt lykilmenn.
,,Ég hef ekki tekið ákvörðun hvort Salah verði hvíldur,“ sagði Jurgen Klopp stjóri Liverpool.
Búist er við að margar breytingar verði á liði Klopp enda þarf stórslys svo liðið fari ekki áfram.