,,Þetta er í fyrsta sinn sem ég er í svona stöðu á ferlinum,“ sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal eftir 2-1 tap gegn Brighton í dag.
Arsenal er í tómu rugli og kemst ekki í Meistaradeildina að ári nema að liðið vinni Evrópudeildina.
,,Þetta er ekki einfallt, ég hef hins vegar næga reynsu og vilja til að snúa þessu við.“
,,Þessa stundina erum við að gera mistök á mjög örlagaríkum augnablikum.“
,,Við verðum að standa saman og einbeita okkur, við höfum ekkert annað að grípa í.“