Eigendur Everton eru sagðir íhuga það alvarlega að reka Sam Allardyce úr starfi í sumar.
Stóri Sam tók við Everton á erfiðum tíma í vetur og náði að koma Everton úr fallhættu.
Eigendur Everton vilja hins vegar meira en að halda sæti sínu í deildinni og íhuga nú breytingar.
Ensk blöð segja frá því í dag að Mikel Arteta aðstoðarmaður Pep Guardiola sé einn af þeim sem koma til greina.
Arteta átti frábæran feril sem leikmaður hjá Everton áður en hann fór til Arsenal en hann lagði skóna á hilluna sumarið 2016.
Síðan þá hefur hann verið aðstoðarþjálfari City og fer gott orð af honum. Með Everton leikur stjarna okkar Íslendinga, Gylfi Þór Sigurðsson.