Steve Nicol, fyrrum leikmaður Liverpool telur að Gianluigi Donnarumma sé frábær kostur fyrir félagið.
Jurgen Klopp vill fá nýjan markmann á Anfield í sumar en markvarðastaðan hefur verið vandamál, undanfarin ár.
„Ég tel að félagið eigi að reyna að fá Gianluigi Donnarumma frá AC Milan,“ sagði Nicol.
„Hann er ungur og yrði frábær kostur fyrir Liverpool næsta áratuginn,“ sagði hann að lokum.