Zlatan Ibrahimovic er genginn til liðs við LA Galaxy en þetta var tilkynnt í gær.
Hann skrifar undir samning við félagið sem gildir út árið 2019 og mun þéna í kringum eina milljón punda hjá félaginu.
Eftir skipti Zlatan er treyja númer 10 laus hjá Manchester United.
Ensk blöð velta því fyrir sér hver muni klæðast treyjunni á næstu leiktíð, er hún fyrir Gareth Bale eða Antoine Griezmann? Báðir eru orðaðir við félagið.
Þá gætu Marcus Rashford eða Jesse Lingard reynt að fá treyjuna ef stórstjarna er ekki á leið til félagsins.